Almannatengsl
Margir halda að almannatengsl snúist um að "stjórna umræð-unni." En staðreyndin er auðvitað sú að enginn stjórnar umræðunni - a.m.k. ekki lengi. Hins vegar er sitthvað hægt að gera til að stuðla að sanngjarnri umfjöllun, nýta tækifæri og skapa trúverðugleika. Sýnir myndin hættuástand eða er þetta bara saklaus veiðiferð? Ekki er sjálfgefið að frásögn annarra verði í líkingu við upplifun þeirra sem voru á staðnum. |
Réttu verkfærinÍ upplýsingaþjóðfélaginu skiptir sköpum að hafa í hendi sér réttar og áhrifaríkar leiðir til að miðla upplýsingum og hafa áhrif á umræðuna.
Almannatenglar vakta tækifærin, þekkja boðleiðirnar og gefa góð ráð. Ráðgjöf almannatengla getur gert gæfumuninn, ekkert síður á góðum dögum en slæmum. Samskipti á opinberum vettvangi, hvort sem er í gegnum fjölmiðla, með eigin dreifileiðum, í netumræðunni eða annars staðar verða sífellt fjölbreyttari og flóknari. Hraðinn eykst, umræða dagsins í dag er gleymd á morgun (nema auðvitað klúður og klaufagangur). Snögg og rétt viðbrögð eru áríðandi, hvort sem er til að nýta góð tækifæri eða bregðast við neikvæðri umfjöllun. |
Fjölbreytt þjónusta
Proforma PR byggir á yfir tuttugu ára reynslu af almannatengslum og markaðsstarfi. Þjónustan er mjög víðtæk, allt eftir þörfum hverju sinni. Stundum nægir einföld aðstoð einu sinni og stundum er um að ræða samfellt samstarf árum eða áratugum saman. Meðal þjónustu má nefna:
|